06.04.2008 16:51:49 / toti.
Sunnudagur 6. Apríl 2008.
Ég held að ég hafi ekki vaknað jafn þunnur á ævi minni. Ég vill samt ekki kenna öllum mjöðinum sem ég fargaði í gær um það heldur hversu illa ég vaknaði.
Ég hitti Egill þann ágæta mann á hverfisbarnum i gær klukkutíma fyrir lokun. Flestir af drykkjufélögonum voru þá farnir heim og við egill vorum að spá í að splitta taxa heim líka.
Þegar við erum komnir upp í leigubíl stingur hann uppá því að við tökum leigubíl heim til mín og pöntum okkur pizzu. Mér fannst það bara ágætis hugmynd og sló til en svo þegar við erum búnir að borða og erum að horfa á Fight Club þá stingur Egill uppá því að fá að gista hjá mér.
Ég í góðmennsku minni tek því alveg og fer ekki að reka þennan vesaling út aftur í kuldann en þegar ég var að fara setja dínu á gólfið þá vill fá að sofa í rúminu mínu 
Ég: hvar á ég þá eignlega að sofa?
Egill: við sofum bara báðir í þessu rúmi comon
Ég: nei láttu ekki svona þetta er ekkert nógu stórt rúm fyrir okkur báða skelltu þér á dínuna bara.
og svona hélt þetta áfram í svona 10min þangað til hann loksins haunskaðist á dínuna
Svo stekk ég upp til að ná í auka lak fyrir egil og kem svo niður og þá er gæjinn búinn að troða sér loksins á dínuna en búinn að hirða sængina og er að nota
Palla sem kodda ( Palli er bangsinn minn ). Þarna missti ég mig gjörsamlega og
ape shittaði yfir hann hvað það skyldi þýða að nota Palla sem einhvern helvitis kodda.
og var þarna alvarlega að spá í að hringja á leigubíl fyrir manninn en ákveð að gefa honum einn séns víst hann bað Palla afsökunar á þessu öllu.
Þarna var ég orðinn frekar pirraður en vildi bara klára myndina og fara að sofa en þá byrjar maðurinn að hrjóta. Og þetta var ekki svona krúttleg hrota sem heyrðist lítið í heldur var þetta eins og það væri verið að hvelja kött. Ég hækka þá bara í sjónvarpinu og sofna á endanum.
Svo vakna ég kl 1 leitið og heyri í manninum vera hringja á fullu og biðja fólk um að sækja sig heim til min. Ég lét eins og ég væri sofandi því ég nennti ekki að fara á fætur næstu 5 klukkutímanna í minnsta kosti þangað til hann "vekur" mig og spyr hvort ég geti skutlað honum heim.
Ég var ekki að nenna því en ég leit samt á þetta þannig að ef ég myndi ekki gera það þá myndi hann halda áfram að fara í tauganar mínar og ákveð að skutla honum heim til sín og drífa mig svo strax aftur heim að sofa og segi honum að bíða meðan ég bursti í mér tennurnar og stekk þá á klósettið mitt sem er sirka 3 fm í þvermál og kem inn í þessa verstu skítafýlu sem ég hef nokkurntíman vitað af.
Þá hafði gæjinn tekið þynnkuskituna í þessu litla klósetti sem btw hefur ekki einn einasta glugga. Ég kúast strax og ákveð að sleppa að bursta i mer tennurnar því það var ekki hægt að vera þarna inni og þó ég héldi í mér andanum meðan ég væri þarna þá myndi eg samt finna lyktina og dríf mig út til að skutla honum heim.

Það var ekki einusinni skilið setuna eftir niðri
Svo byrjar hann aftur að pína mig þegar við erum komnir hálfa leiðina í Kópavog
Egill: ohhh ég gleymdi... bíllinn minn er í Mosó, þú verður að skutla mér þangað
Ég: æji comon Egill færðu ekki einhvern heima hjá þér til að skutla þér eftir bílnum?
Egill: nei þú verður að gera þetta fyrir mig plís maður
og eftir þetta beit ég bara í tunguna mína og byrjaði að hugsa hversu gott væri þegar ég væri búinn að losa mig við þennan leppalúða og kominn heim í rúmið. Einnig mundi ég þarna að ég hafði geymt tvær pizzusneiðar frá kvöldinu áður sem ég ætlaði að borða þegar ég væri kominn heim aftur. Ég skutla honum upp í mosó og dríf mig heim til að borða þessar sneiðar og fara svo að sofa. Þegar ég er kominn heim og ætla borða þessar tvær sneiðar mínar kem ég aðeins að einni sneið og í þokkabót var hún með gráðosti, tómötum og ansjósum. Einhver versta pizza sem hægt er að hugsa sér.
Einn versti dagur lífs míns og ég tala líka fyrir hönd Palla því hann leit út fyrir að vera frekar ósáttur.